Hörður Ægisson ritstjóri Markaðarins skrifar leiðara. Leiðarinn birtist í Fréttablaðinu í gær.
\"Fyrir liggur að tveir stjórnmálaflokkar - Vinstri græn og Samfylkingin - hafa lagt til að útgjöld ríkissjóðs aukist árlega um 50 til 70 milljarða á árunum 2018 til 2022.\"
\"Öllum má vera ljóst að útgjaldaukning af slíkri stærðargráðu sem nemur öllum greiddum tekjuskatti fyrirtækja á þessu ári verður ekki fjármögnuð nema með umtalverðum skattahækknunum\" skrifar Hörður.
\"Þetta þarfnast ekki útskýringar.\"
\"Sömu flokkar hafa hins vegar að mestu látið hjá líða að gera grein fyrir því hvaðan fjármunirnir eiga að koma - nema þá aðeins að ekki standi til að hækka skatta á almenning.\"
\"Þess í stað eigi að hækka útgjöld með sérstakri skattlagningu á ríkasta og tekjuhæsta hópinn í samfélaginu.\"
\"Ekki er þetta trúverðugur málflutningur.\"
Höðrur segir að hugmyndir flokkannna tveggja muni bitna á almenningi.