Tvenn óformleg samtök, Jæja og Skiltakarlarnir, hafa boðað til mótmæla næsta mánudag undir slagorðinu: Kosningar strax! - Ríkisstjórn Íslands er umboðslaus.
Boðað er til mótmælanna klukkan 17 en fyrr um daginn kemur Alþingi saman í fyrsta skipti eftir páskafrí.
Sanmtökin hafa áður staðið að fjölmennum mótmælum en nokkuð er um liðið síðan grasrótarhreytingarnar tvær gripu síðast til aðgerða.
Á facebook-hópi samtakanna þar sem mótmælin eru kynnt, segir að í rúmt ár hafi skoðanakannanir sýnt að ríkisstjórnin njóti ekki meirihlutafylgis meðal þjóðarinnar. Þrátt fyrir það reyni stjórnin að keyra í gegn umfangsmiklar breytingar á náttúrunýtingu, sölu eigna bankanna ásamt sölu á hlut Landsbankans. Þrátt fyrir loforð um að hafa allt uppá borðum og auka gegnsæi, eins lagt var til í Rannsóknarskýrslu Alþingis hafi salan á Símanum og Borgun farið fram fyrir luktum dyrum.
\"Þetta er nákvæmlega sama ferlið og fyrir síðasta hrun. Almenningur getur ekki annað en litið svo á að hér sé verið að stela eignum ríkisins og hlýtur að velta fyrir sér hverjar aðrar eignir ríkisins hafi verið seldar á þennan hátt. Auðlindir Íslands eru meiri miðað við mannfjölda en auðlindir Noregs, það er því eftir miklu að slægjast. Ljóst er að sú velferð sem almenningur í Noregi nýtur er ekki hér að finna. Í stað þess að nota skattkerfið og önnur úrræði ríkisins til að jafna kjör almennings er hátekjuskattur lækkaður, veiðigjöld afnumin og eignir ríkisins seldar á undirverði til útvalinna. Ríkisstjórnin gætir ekki hags þjóðarinnar. Hún er umboðslaus að færa eignir okkar allra í hendur örfárra, viðskiptafélaga og ættingja,\" segir á facebook-síðunni.
Um atburði líðandi stundar segir: \"Fjölmargir þingmenn og ráðherrar eru tengdir alvarlegum spillingarmálum. Nægir að nefna nöfn þeirra og allir vita hvað átt er við: Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra Sjálfstæðisflokksins, Hanna Birna Kristjánsdóttir fyrrverandi innanríkisráðherra Sjálfstæðisflokksins, Páll Jóhann Pálsson þingmaður Framsóknar, sem segir hreint út „... ég hef bara talið mig vera fulltrúa útgerðarinnar hérna og hef ekkert farið leynt með það.“ Fjármálaráðherra tengdist vafningsmálinu sem kostaði þjóðina milljarða og nú hefur komið í ljós að forsætisráðherra hefur leynt þjóðina mikilvægum upplýsingum um stöðu fjölskyldu sinnar gagnvart innlendum fjármálastofnunum, um eignir í skattaskjólum.\"
Einnig segir: \"Þessi ríkisstjórn er vanhæf, ekki aðeins einstakir þingmenn og ráðherrar. Þessari stjórn ekki treystandi lengur, að mati meirihluta þjóðarinnar. Almenningur óttast að ríkisstjórnin ætli að færa stóreignamönnum sem mest af eignum ríkisins áður en næstu kosningar verða eftir um ár. Það má ekki verða. Því verður þessi ríkisstjórn að víkja, vegna eigin verka og vegna eigin spillingar. Að ekki sé minnst á tilraunir til að koma í veg fyrir að þjóðin fái þá nýju stjórnarskrá sem hún samdi sér og samþykkti. Sú atlaga að lýðræði í landinu er farin að vekja athygli um allan heim. Ríkisstjórnin er rúin trausti og andlýðræðislegt að hún skuli ætla sér að sitja áfram. Ríkisstjórninni ber að virða lýðræðislegar grundvallarreglur og fara frá sem fyrst.\"
Því sé krafan: Kosningar strax!
Helgi Hjörvarr þingmaður Samfylkingar, sagði fyrr í dag að hann teldi tilllögu um vantraust á Alþingi engu skila. Nær væri að boða til kosninga til að kanna traust almennings á verkum ríkisstjórnarinnar fremur en að láta þingmenn Framsóknarflokksins fella tillögu um vantraust á þá sjálfa.
Tíðinda má vænta um kl. 16.30 í dag af fundi minnihlutaflokkanna, hvort stjórnarandstaðan mun leggja fram vantraust á Sigmund Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra vegna Tortólamálsins svokallaða. Þá hefur verið upplýst að bæði formaður og varformaður Sjálfstæðisflokksins eigi félög tengd aflandsstarfsemi utan Íslands.