Boðað aftur til kosninga

Kosið verður aftur til stjórnar og trúnaðarmannaráðs í Sjómannafélagi Íslands. Eftir að Félagsdómur komst að þeirri niðurstöðu að óheimilt væri að gera það að skilyrði kjörgengis í félaginu að greidd hafi verið félagsgjöld til félagsins í a.m.k. þrjú ár hefur verið hávær krafa um að kosningar yrðu endurteknar. Félagsdómur komst að þessari niðurstöðu eftir að Heiðveigu Maríu Einarsdóttur var vikið úr félaginu.

Í október á síðasta ári var greint frá því að Heiðveig hefði verið rekin úr félaginu. Er það einsdæmi að frambjóðandi til formannsembættis í stórum hagsmunasamtökum sé rekinn úr samtökunum. Sjómannafélagið sakaði Heiðveigu um ærumeiðingar. Hún sagði á móti að margt þyrfti að laga hjá félaginu. Eftir að Heiðveig bauð sig fram til formanns tók við barátta sem var þyrnum stráð. Í ítarlegu viðtali DV við Heiðveigu kom eftirfarandi fram:

Eftir að Heiðveig kynnti framboð sitt og síns lista nýverið, var reglum félagsins um kjörgengi skyndilega breytt á heimasíðunni. Mest íþyngjandi ákvæðið var að þriggja ára vera í félaginu var gerð að skilyrði fyrir kjörgengi til formanns, og var Heiðveig ásamt mörgum öðrum þar með útilokuð.

„Margir hverjir töldu að þeir væru að fara inn í félagið á fullum réttindum rétt eins og tekið er fram á heimasíðu og í samtölum við starfsmenn skrifstofu.“

Þegar Heiðveig spurðist fyrir um þetta var henni tjáð að reglunum hefði verið breytt á síðasta aðalfundi, fyrir nærri ári síðan, en ekki var hægt að veita aðgang að fundargerð heldur einungis senda ljósmyndir af stílabók með áprentuðum skjölum.

„Þetta eru algjörlega óboðleg og ólögleg vinnubrögð og það þarf að taka efnislega umræðu um þetta. Að breyta lögum stéttarfélags á heimasíðu og án heimildar aðalfundar. Á þessum ljósmyndum er aðeins að finna eina breytingu af átta sem voru gerðar á heimasíðunni. Ég set einnig stórt spurningarmerki við þessa fundargerð í ljósi þess hversu erfitt var að fá hana og að lagabreytinga er ekki getið í fundarboði eins og lögin kveða á um. Auk þess skrifar formaðurinn, Jónas Garðarsson, einn undir þó að fundarritari í stjórn félagsins eigi að gera það líka samkvæmt lögunum. Þessi skrípaleikur í kringum þessi lög og kynningu þeirra hefur gert þau óstarfhæf og greinar stangast á.“

Telur þú að fundargerðin hafi verið fölsuð?

„Nei, ég hef aldrei sagt það. En ég set spurningu við gildi fundargerðarinnar sjálfrar miðað við þennan skrípaleik og þessar sjö aukabreytingar sem allar varða réttindi félagsmanna og núverandi stjórn.“

Heldur þú að þetta sé gert til að halda þér frá stjórninni?

„Já, og ekki aðeins mér heldur öllum sem vilja breytingar og vilja láta til sín taka.“

Heiðveig bjóst við hörðum viðbrögðum en var gáttuð þegar í ljós kom að hún hafði verið rekin. Kvaðst hún aldrei trúa að slíkt gæti átt sér stað á Íslandi. Hafa fjölmargir skorað á Heiðveigu að bjóða sig fram aftur.

Í yfirlýsingunni frá Sjómannafélaginu segir enn fremur:

Að mati stjórnar, trúnaðarmannaráðs og lögmanna félagsins, er einsýnt að stefnandi í framangreindu félagsdómsmáli var ekki dæmd inn í félagið á ný með dómi Félagsdóms. Hún hefur hafnað boði um að ganga í félagið á ný. 

Þrátt fyrir að stjórn og trúnaðarmannaráð félagsins telji að úrskurður kjörstjórnar frá 20. nóvember síðastliðinn, um ólögmæti mótframboðs B-lista, standi óhaggaður, vegna annmarka sem á framboðinu voru, hefur stjórn og trúnaðarmannaráð félagsins ákveðið að fram fari á ný kosningar í félaginu, til að hafið sé yfir vafa að frambjóðendur á listum stjórnar félagsins sitji í óumdeildu umboði félagsmanna.

Verður því boðað á ný til kosninga í stjórn, trúnaðarmannaráði og stjórn matsveinadeildar, til samræmis við lög félagsins og ákvörðun stjórnar og trúnaðarmannaráðs. Verður kosningin og framkvæmd hennar auglýst í fjölmiðlum og á heimasíðu félagsins við fyrsta tækifæri til samræmis við lög félagsins.