Ríkisstjórnin hyggst einfalda tekjuskattskerfið með því að taka út milliþrepið en það myndi auka ráðstöfunarrekjur millitekjahópanna í landinu. Þetta innlegg stjórnvalda í kjaraviðræðurnar er sagt hafa liðkað mjög fyrir samningagerð síðustu daga.
Skattþrepin eru nú þrjú í tekjuskattskerfinu; launþegar með tekjur undir 309,140 krónum greiða 22,86% skatt af tekjum sínum, launþegar undir 836,404 króna mánaðarlaunum greiða 25,3% tekjuskatt og fólk sem hefur hærri tekjur en það greiðir 31,8% skatt af sínum tekjum. Brottnám milliþrepsins þýðir að stór hópur millitekjufólks mun greiða tæplega þremur prósentustigum minna í tekjuskatt eftirleiðis - og þannig er komið til móts við þá kröfu VR, LÍV, Flóans og StéttVest að verja kjör millitekljuhópanna á sama tíma og lágmarkslaun eru hækkuð í 300 þúsund krónur í áföngum fram til vormánaða 2018.
Talið er að ríkissjóður verði af 15 til 17 milljörðum króna í tekjur vegna þessara breytinga á tekjuskattkerfinu, en þær þarf að leggja fram í næstu fjárlögum sem koma til þinglegrar meðferðar í sumarlok.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir í Fréttablaðinu í morgun að framlag stjórnvalda til samningsgerðarinnar geti vonandi ásamt tillögugerð stéttarfélaganna komið á friði á vinnumarkaði út árið 2018 sem yrði að hans mati mikill áfangi. "Ég á enn eftir að átta mig á heildaráhrifunum af samningunum og samspili þeirra við aðgerðir stjórnvalda sem kann að reyna á í tengslum við gerð samninganna," segir hann en telur að þær tillögur sem eru nú á borðinu komi ekki til með að setja allt í uppnám eins og útlit var fyrir á tímabili.