Mótmæli vegna dómsmálaráðherra og framferðis lögreglu

Ýmis almanna- og grasrótarsamtök hafa boðað til mótmæla undir yfirskriftinni „Mælirinn er fullur: Sigríði Andersen burt!“ Fyrst verður krafist afsagnar Sigríðar Andersen dómsmálaráðherra í kjölfar dóms Mannréttindadómstóls Evrópu, sem úrskurðaði að skipan hennar á fjórum dómurum í Landsrétt hafi brotið gegn mannréttindasáttmála Evrópu. Eftir þau mótmæli verður harkalegu framferði lögreglu gagnvart hælisleitendum mótmælt.

Mótmælin, sem eru meðal annars boðuð af Jæja, Gulu vestunum, Ungum jafnaðarmönnum, Ungum Pírötum og fleiri samtökum, hefjast klukkan 16:30 á Austurvelli. Í kynningu á viðburðinum eru þátttakendur hvattir til þess að mæta með banana. Í kynningunni er banani sagður tákn þess að það kallist bananalýðveldi þegar hagsmunir yfirstéttarinnar eru alltaf teknir fram yfir mannréttindi og hagsmuni almennings.

Kynningin á viðburðinum á Facebook í heild:

„Við krefjumst afsagnar Sigríðar Andersen dómsmálaráðherra í kjölfar dóms Mannréttindadómstóls Evrópu sem úrskurðar að skipan Sigríðar á dómum í Landsrétt hafi verið ólögleg. Dómsmálaráðherra sem grefur undan dómskerfinu verður að víkja.

Mætið á Austurvöll klukkan 16:30 fyrir utan Alþingishúsið með banana, tákn þess að það kallast bananalýðveldi þar sem hagsmunir yfirstéttarinnar eru alltaf teknir fram yfir hagsmuni almennings og mannréttindi. Ekki henda banananum á eftir, borðið hann.

Eftir að mótmælastöðunni lýkur hefst annar fundur á Austurvelli þar sem ofbeldi lögreglunnar gagnvart flóttafólki er mótmælt og tekið undir hófstilltar kröfur flóttafólksins um áheyrn stjórnvalda, að fá að vinna á meðan mál þeirra eru til afgreiðslu og um mannsæmandi lífsskilyrði.“

Hyggst ekki segja af sér

Sigríður segist ekki ætla að segja af sér. „Ég mun ekki gera það. Ég hef ekki ástæðu til þess,“ segir hún í samtali við RÚV. Hún telur starfsemi Landsréttar ekki vera í uppnámi þó svo að dómstóllinn hafi ákveðið að fresta út vikuna öllum málum með þeim fjórum dómurum sem skipaðir voru í réttinn af Sigríði, þrátt fyrir að vera ekki taldir meðal fimmtán hæfustu umsækjenda.