Boða þingfundi vel fram á sumar

Útlit er fyrir að allar áætlanir Alþingis fari úr skorðum á næstu vikum og þingað verði vel fram á sumar. Formaður fjárlaganefndar staðfestir þennan ásetning enda sé enn verið að bíða eftir veigamiklum frumvörpum úr ráðuneytunum.


Þeirra helst eru ef til vill haftafrumvörp ríkisstjórnarinnar en Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir við Morgunblaðið í dag að þau verði örugglega lögð fram á þessu þingi. Hann hefur örfáa þingdaga til stefnu og má því ljóst vera, þegar af þeirri ástæðu, að fresta verður þinglokum því frumvörpin eru ennþá í yfirlestri og ekki tæk til framlagningar í ríkisstjórn.


Samkvæmt heimildum blaðsins er þungi frumvarpanna meiri á laga- en fjármálahliðina og staðfestir ráðherra að svo sé; meðal annars fari mikil vinna í útfærslu svokallaðs stöðugleikaskatts sem á að takmarka útstreymi fjármagns og þar með áhrif á krónuna þegar höftunum verður aflétt.


Vigdís Hauksdóttir formaður fjárlaganefndar segir ástandið í þinginu vera þannig að þar sé enginn á leið í sumarfrí.