\"Ef ekkert óvænt gerist tilkynnum við með vorinu að bygging álversins verði að veruleika,“ segir Ingvar Unnsteinn Skúlason hjá Klöppum Development ehf um fyrirhugað álver í Skagafirði.
Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag, en þar segir að forsvarsmenn fyrirtækisins, sem eru í samstarfi við Kínverja, áformi að reisa 120 þúsund tonna álver við Hafursstaði í Skagabyggð.
Í fréttinni segir að fulltrúar Klappa, sveitarfélaga nyrðra og verkfræðingar hafi farið til Kína í síðasta mánuði til að kynna sér álframleiðslu þar og glöggva sig almennt á málavöxtu. Þá hafi verið óskað eftir því við fjárlaganefnd Alþingis að allt að 70 milljónum króna verði varið til rannsókna og greiningar á innviðum og samfélagi á Norðurlandi vestra.