Frjáls verslun er búin að kynda upp væntingavísitölu landsmanna með því að upplýsa að fyrir hádegi í dag verði upplýst miklil tíðindi úr könnun sem gerð var dagana 26. apríl til 1. maí um fylgi hugsanlegra frambjóðenda til forseta. Meðal annars var spurt hvern þátttakendur vildu sem forseta ef þeir mættu nefna hvaða Íslending sem vera skyldi.
Alls tóku 74% þátttakenda afstöðu til spurningarinnar. Um 59% þeirra sem afstöðu tóku nefndu þá tvo frambjóðendur sem mest fylgi fengu, Ólaf Ragnar Grímsson og Guðna Th. Jóhannesson.
\"Næsta víst er að þær niðurstöður muni vekja mikla athygli,\" segir á vefnum heimur.is.
Fram hefur komið hjá Guðna Th. Jóhannssyni að hann ætlar að upplýsa um ákvörðun sína, hvort hann fer fram á uppstigningardag.
Ef könnunin sem birt verður í dag sýnir að mjótt er á munum milli hans og Ólafs Ragnars hleypir það enn nýrri spennu í baráttuna.
Andri Snær Magnason rithöfundur er sá Íslendingur sem þegar hefur framboðsskrefið til fulls sem fær mest fylgi í könnunum ef undan hefur verið skilið fylgi við sitjandi forseta.
Uppfært kl. 08:53: Samkvæmt könnuninni sem nú hefur verið birt munar aðeins 5 prósentustigum á fylgi Guðna og ÓRG. Sjá hér: