Boða fjölmenn mótmæli á 17. júní

Boðað hefur verið til fjölmennra mótmæla á Austurvelli á morgun þar sem aðgerðarhópur undir yfirskriftinni \"Ríkisstjórnin burt - vér mótmælum öll\" ætlar að hafa sig í frammi á meðan forsætisráðhera flytur hátíðarræðu.

Vart munu vera þess önnur dæmi að mómælendur setji svip sinn á þjóðhátíðarsamkomu á Austurvelli - og hefur fyrirhuguðu uppátækiverið verið tekið með æði misjöfnum hætti, en þar má nefna að Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir borgarfulltrúi Framsóknarflokksins í Reykjavík hefur látið þau orð frá sér fara að þessir mótmælendur þurfi kannski einu sinni að taka \"hausinn út úr rassgatinu á sér\" eins og það var orðað af fulltrúanum þegar heyrðist af undirbúningi aðgerðanna, en honum er hreint ekki skemmt vegna þerirrar stöðu sem búast má að formaður Framsóknarflokksins verði í á morgun..

Rúmlega þrjú þúsund hafa boðað komu sína á mót­mæla­fundinn sem á að hefjast klukk­an 11:00 á Aust­ur­velli, á sama tíma og hátíðardag­skrá hefst í til­efni þjóðhátíðardags­ins. Lög­regla verður með auk­in viðbúnað vegna mót­mæl­anna en að hennar sögn er von­ast eft­ir friðsöm­um mót­mæl­um og að allt fari vel fram.