Boða betri tíð á alþingi

Nýkjörnu þingmennirnir, Halldóra Mogensen Pírötum og Jón Steindór Valdimarsson Viðreisn, verða gestir Þjóðbrautar í kvöld. Þau ræða sín helstu hugðarefni og eins óska þau þess bæði að starfshættir á Alþingi breytist til hins betra með þeim mörgu nýju þingmönnum sem nú taka sæti á Alþingi.

Þeirra bíður að taka á úrskurði kjararáðs, en það mál mun eflaust koma til tals og jafnvel afgreiðslu þegar Alþingi kemur saman.

Halldóra vill að Alþingi vinni að breytingum á stjórnarskrá samkvæmt niðurstöðu stjórnlagaráðs. Jón Steindór er kunnur af baráttunni fyrir aðild Íslands að Evrópusambandinu. Hann hyggst halda þeirri baráttu áfram.

Þjóðbraut er á dagskrá milli 21:00 og 22:00 í kvöld.