Bó eins og bó gerist bestur

Það er gullin regla þegar nautasteikinni er komið fyrir á grillinu að hreyfa hana sem allra minnst segir matgæðingurinn og tónlistargoðsögnin Björgvin Halldórsson, stundum nefndur Bó, en hann er gestur Griillspaðans á Hringbraut í kvöld.

Björgvin hefur mikla nautn af því að grilla á góðum degi eins og vel kemur fram í þætti kvöldsins sem hann nánast tekur yfir. Björgvin grillar nefnilega af mikilli alúð og umhyggju enda áhugakokkur af ákafri gerðinni.  Á matseðli kvöldsins er „haf og hagi“ eða nautalund og humar ásamt góðu meðlæti, sósum og grænmeti.  Það er þess virði að fylgjast með þessum ástsæla söngvara grilla fyrir áhorfendur, enda lumar hann á mörgum góðum ráðum.

Þetta er þriðji þáttur Grillspaðans sem verður á dagskrá Hringbrautar í allt sumar, en fyrr í sumar hafa Guðni Ágústsson fyrrverandi landbúnaðarráðherra og Kristján Jóhannsson óperusöngvari kíkt til,Sigurðar K. Kolbeinssonar og mundað þar spaðann.

Grillspaðann er hægt að horfa á með því að smella hér. 

Horfðu á klippur úr þætti kvöldsins með því að smella hér: