Vladimir Pútín forseti Rússlands segir samskipti Rússlands og Bandaríkjanna hafa versnað til muna eftir embættistöku Donald J. Trump. Frá þessu segja erlendar fréttastofur.
Þessi ummæli forseta Rússlands vekja einkum eftirtekt þar sem fyrr í dag voru fundir utanríkisráðherra landanna tveggja í Moskvu. Vonir voru bundnar við að skoðaskipti ráðherranna og miðlun upplýsinga um sekt eða sakleysi forseta Sýrlands en hann bera Bandarikjamenn þungum sökum. Segja Bandarikjamenn forseta Sýrlands bera fulla ábyrgð á eiturgasárás sýrlenska flughersins í liðini viku.
Líkast til munu bæði Rússar og Íranir fjölga í herliði sínu á Sýrlandi og gera má ráð fyrir því að rússneskum herskipum á Miðjarðarhafi verði fjölgað en sum þessara herskipa eru búin loftvarnaflaugum sem hægt er að nota gegn bæði flugvélum og stýriflaugum.
Assad forseti Sýrlands þarf ekki að vera uggandi um sinn hag. Íran og Rússland munu tryggja setu hans á forsetastóli. Ríkin tvö geta fjölgað í herliði sínu svo,um munar auk þess sem Rússland getur stóreflt flugflota sinn á Sýrlandi og flotadeild á Miðjarðarhafi.