Blokkaríbúðir á 150 milljónir

Verð nýrra íbúða í Skugga­hverfi hef­ur hækkað mikið á síðustu miss­er­um og kost­ar dýr­asta nýja íbúðin sem nú er aug­lýst til sölu 211,4 millj­ón­ir. Íbúðin er á Lind­ar­götu 39 og kostaði 183,8 millj­ón­ir sl. haust. Verðhækk­un­in er 27,6 millj­ón­ir.

Þetta kemur fram í Morgunblaðinu sem gerir ítarlega athugun á kostnaði nýrra íbúða í turnunum við Sundin blá. Þar segir að í nýja turninum sem er í byggingu við Vatns­stígr 20 til 22 séu fjór­ar íbúðir til sölu sem kosta yfir 150 millj­ón­ir króna.

Ef marka má sölu­vef­inn Skuggi.is er ágæt eft­ir­spurn eft­ir nýj­um íbúðum í hverf­inu því 31 af 36 íbúðum á Lind­ar­götu 39 er sögð seld og 23 af 41 íbúð á Vatns­stíg 20-22. Þar af eru sex íbúðir á efstu hæðunum á Vatns­stíg 20-22 seld­ar en þær verða ekki af­hent­ar fyrr en næsta sum­ar, að því er fram kem­ur í um­fjöll­un um verðhækk­an­ir á nýj­um íbúðum í hverf­inu  í Morg­un­blaðinu í dag.