Faldi blóðugt belti og reim í frystikistu

Gunnar Örn Arnarson var í morgun í Héraðsdómi Vesturlands dæmdur í sextán ára fangelsi eftir að hann banaði Karli Birgi Þórðarsyni í heimahúsi á Akranesi sl. haust.
 

samkvæmt ákæru og dómi kyrkti Gunnar Örn Karl með því að herða beltisól og fatareim að hálsi fórnarlambsins.

Karl lá þungt haldinn á sjúkrahúsi í fimm daga eftir árásina en komst ekki til meðvitundar.

Gunnar Örn viðurkenndi fyrst sök en sneri svo fyrri framburði fyrir dómi og neitaði að hafa banað Karli. Í dóminum segir um þetta:

\"Eins og áður er rakið hefur ákærði játað hjá lögreglu að hann hafi tekið með báðum höndum utan um hálsinn á A... og haldið þannig í nokkurn tíma og jafnframt sett reim úr peysu sinni utan um hálsinn á honum. Er það mat dómsins að framangreind játning ákærða, sem er í samræmi við efni ákærunnar, samræmist í hvívetna þeim gögnum sem fyrir liggja í málinu andstætt framburði hans fyrir dómi.\"

Einnig segir: \"Þannig báru nágrannar í næsta húsi að þeir hefðu upp úr kl. 16.00 umræddan dag séð inn um gluggann á ... hvar ákærði virtist vera að messa þar yfir manni. Kvaðst annar þeirra, vitnið T..., hafa séð ákærða leggja höndina á öxl mannsins og taka síðan undir hökuna eða hálsinn á honum. Þá liggur fyrir að belti, sem var undir hinum látna, og hvít reim, sem var um hálsinn á honum, þegar G... kom að, hurfu af vettvangi í þann mund sem ákærði hvarf þaðan og sjúkraliðar og lögregla voru að koma á staðinn. Bæði beltið og reimin fundust síðan í frystikistu þar á staðnum og reyndust vera á þeim blettir með blóði A.\"

Á reiminni var járnhólkur á öðrum endanum en ekki á hinum og sést á reiminni að þar hafði áður verið slíkur hólkur. Féll samskonar hólkur síðan úr úlpu hins látna er hann var kominn á Landspítalann.

\"Ljóst er að ákærði var með slíka reim í peysu sinni er lögregla hafði afskipti af honum stuttu áður þennan sama dag og var hún þá með tveimur járnhólkum á. Þegar ákærði var hins vegar handtekinn nokkru síðar um daginn vegna máls þessa var reimin ekki lengur á peysunni. Hefur ákærði orðið margsaga um skýringar á þessu en fyrir dómi hélt hann því fram að hann hefði skipt um peysu í millitíðinni og farið í aðra alveg eins, en dómurinn telur þá skýringu fjarstæðukennda. Loks liggur fyrir að ákærði viðurkenndi fyrir dómi að hafa reiðst vegna þess að A... hefði tekið inn lyfin hans og þá tekið „bara svona smá hálstak á honum“ og haldið í nokkrar sekúndur.\"