Blóðsugur bankakerfisins

Jóhannes Björn, höfundur bókarinnar Falið vald, segir í ummælum við frétt á Eyjunni að láglaunastefnan hérlendis veiki krónuna mjög.

Í fréttinni er m.a. fjallað um að Bjarni Benediktsson formaður hafi lotið í lægra haldi, en hann boðaði í setningarræðu sinni að ekki ætti að „kasta gjaldmiðlinum“ en eigi að síður samþykkti landsfundurinn ályktun um að kanna til þrautar hvort rétt sé að taka upp nýjan gjaldmiðil.

Jóhannes Björn skrifar athugasemd og fer hörfðum höndum um peningastefnuna: „Vandinn er ekki lítil króna heldur stórkostleg óstjórn og dekur við valda hagsmunaaðila. Heimskuleg láglaunastefna veikir líka krónuna reglulega. Topparnir, millistjórnendur og blóðsugur bankakerfisins taka fyrst allt of mikið til sín. Þegar allir aðrir reyna að ná mannsæmandi launum springur kerfið venjulega með verðbólguöldu. Ráð Seðlabankans þessa stundina lítur út fyrir að vera bein afskipti af launasamningum (ekki þó hinna tekjuhærri) með viðeigandi refsingu sem felst í hreinum okurvöxtum. Byrjum á að bæta hagstjórnuna áður en reynt er að virkja nýja mynt.“