Blindrafélagið með sannleiksnefnd

Sannleiksnefnd verður stofnuð á vegum Blindrafélagsins sem á að komast til botns í því hvort eitthvað er hæft á ásökunum á hendur formanni félagsins um að hafa vélað ungan félagsmann til að leggja allt til sparifé í fasteignabrask honum tengt.
 
Þetta var niðurstaðan á fjölmennum fundi félagsins í gærkvöld sem efnt var til vegna framkominnar gagnrýni á formann félagisins, Bergvin Oddsson, en sjákfur hefur hann vísað öllum ásökunum um óheildinni í starfi á bug.
 
Stjórn og varastjórn Blindrafélagsins hafði lýst yfir vantrausti á Bergvin fyrir að hafa blandað eigin málum við starfsemi félagsins. Í yfirlýsingu sem stjórnin sendi frá sér var Bergvin borinn þungum sökum í þessa vera, sem Bergvin segir að byggi á misskilningi: \"Ég tel mig ekki á nokkurn hátt hafa beitt eða sýnt óheiðarleika í þessum viðskiptum og þaðan af síður gerst brotlegur í starfi sem formaður Blindrafélagsins enda stofnun og rekstur þessa fasteignafélags  Blindrafélaginu alls óviðkomandi,“ sagði hann í yfirlýsingu sinni vegna málsins.
 

Á fundinum í gærkvöld var samþykkt að Bergvin myndi stíga til hliðar sem formaður og sérstök sannleiksnefnd skipuð til að finna út hvað hefði þarna gerst. Kristinn Halldór Einarsson segir í samtali við fréttavef RÚV að skiptar skoðanir hafi verið um málið en lendingin hafi verið tillaga sem allir gátu sætt sig við. Sannleiksnefndinni er gert að skila sinni niðurstöðu fyrir aðalfund sem verður í febrúar en ekki maí eins og hefð hefur verið fyrir hjá Blindrafélaginu.