Eiður Guðnason, fyrrum þingmaður, fréttamaður og sendiherra, rifjar upp fyrstu kynni sín af Alþingi sem benda til þess að ekki sé einsdæmi að menn fái sér í tána á þingfundum. Hringbraut hefur sagt fréttir af ummælum Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur þingmanns VG um flissandi þingmann undir áhrifum í gærkvöld á þingi. Hún hefur neitað að nafngreina nokkurn.
„Svo vill til að ég man nákvæmlega hvenær ég kom fyrst á áheyrendapalla þingsins. Það var í byrjun nóvember 1954 . Verið var að ræða vantraust á Bjarna Benediktsson , menntamálaráðherra. Þá var kófdrukkinn þingmaður í salnum, lá hálfpartinn fram á borðið, en reis upp við dogg öðru hverju og sagði: ,,Það er helvítis lýgi\",“ skrifar Eiður á eigin fésbók.
„Þetta var mín fyrsta mynd af störfum Alþingis. Flokksbræður þingmannsins leiddu hann svo úr þingsal.“
Eiður segir að um miðja síðustu öld hafi það þekkst að stöku þingmenn ættu ákveðna geymslustaði í húsinu fyrir svolitla brjóstbirtu en árin hans á þingi 1978 til 1993 minnist hann aldrei ölvunar til vansa, ekki hjá nokkrum manni.
„Þetta er rifjað upp svona í tilefni nýlegra ummæli þingmanns um ölvun á Alþingi.“