Blikur á lofti

Launakostnaður hefur hækkað gríðarlega á liðnum árum eins og stjórnendur úr matvælageiranum bentu á í samtölum við Morgunblaðið á laugardag. Steinþór Skúlason, forstjóri SS, nefnir að laun hafi á síðustu þremur til fjórum árum hækkað um 30-40% en aðeins brot af þessari hækkun hafi farið út í verðlagið. Gengi krónu hafi framan af verið að styrkjast sem hafi hjálpað til, en gengið muni ekki styrkjast meira og því þurfi að hækka verð. Hann telur tímabili lágrar verðbólgu lokið og framundan sé 5-10% verðbólga næstu tvö árin eða svo. Aðrir taka í sama streng um kostnaðarhækkanir sem séu byrjaðar að fara út í verðlagið og hljóti að halda því áfram.

Ofan á þessar kostnaðarhækkanir sem fyrirtækí í landinu hafa lent í leggjast miklar opinberar álögur á laun. Tryggingagjaldið var hækkað mikið í tíð vinstri stjórnarinnar og hefur lækkað allt of lítið síðan. Augljóst er fyrir ríkisvaldið að bregðast nú hratt við og lækka tryggingagjaldið til að skapa eðlilegra starfsumhverfi fyrir fyrirtækin í landinu og draga úr þörf á verðhækkunum.

Sama á við um aðrar skattabreytingar sem beðið er eftir, svo sem gjöld á bifreiðar, eins og framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins nefnir í samtali við Morgunblaðið í dag. Að óbreyttu stefnir í tuga prósenta hækkun bifreiða vegna breyttra staðla ESB. Þá bíða útgefendur bóka og fjölmiðla eftir þeim skattalækkunum sem þeim hefur verið lofað og veitir ekki af í baráttunni við erlenda keppinauta.

Ríkisstjórnin ætti að kosta kapps um að viðhalda þeim stöðugleika sem hér hefur verið og tryggja fyrirtækjum viðunandi skattaumhverfi. Það er ekki hægt að ganga út frá því að mikill vöxtur með lágri verðbólgu og hratt vaxandi velmegun haldi áfram, en stjórnvöld þurfa að stuðla að því að þessi jákvæða þróun geti haldið áfram.