Erla Hlynsdóttir, margverðlaunaður blaðamaður sem hefur vakið landsathygli fyrir að vinna íslenska ríkið ítrekað í meiðyrðamálum fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu, er ánægð með hjartagæsku starfsfólks bráðamóttöku Landspítalans eftir að ung dóttir hennar meiddi sig í gærkvöld.
\"Hún Lovísa mín var að hoppa á sófanum sem hún gerir oft en í þetta skiptið vildi ekki betur til en svo að hún datt úr sófanum og lenti með hökuna á brún stofuborðsins og fékk skurð. Það var rétt að koma háttatími hjá henni og ég brunaði bara með hana í náttfötunum upp á spítala,\" segir Erla í samtali við Hringbraut.
Á tímum þar sem markaðsverð er í auknum mæli lagt á störf án þess að mennskan og mannúðin hljóti sömu athygli talar pistill Erlu beint inn í þjóðarhjartað á tímum verkfalla sjúkraliða og Erla bætir við: „Í öllum hamagangnum var ég að bíða eftir tækifæri til að hrósa þeim, og þegar annar hjúkrunarfræðingur sagði við dóttur mína að hún væri snillingur greip ég nánast fram í og sagði: „Sko, ÞIÐ eruð snillingar.“ Það er meira en að segja það að fá ókunnugt barn til að hætta að gráta og fela sig, og yfir í að fá að sauma það.“
Lovísa, dóttir Erlu, verður sex ára gömul á næstu dögum og heilsast vel þrátt fyrir óhappið.
\"Þetta dýrmæta starfsfólk þarf að setja sig í nýjar stellingar fyrir hvern einasta skjólstæðing og þarna voru greinilega sannkallaðir fagmenn á ferð,\" segir Erla Hlynsdóttir, móðir og blaðamaður.