Skiptar skoðanir eru um þjóðgarð í Breiðafirði. Síðastliðið mánudagskvöld var sérstakur fundur haldinn um framtíð Breiðafjarðar að frumkvæði Breiðafjarðarnefndar. Fundurinn var hluti af fræðslufundaröð, í samstarfi við Náttúrustofu Vesturlands, sem hefur átt sér stað í sveitarfélögum við fjörðinn.
Þetta er gert í framhaldi af málþingi sem nefndin stóð fyrir í Tjarnarlundi í Dalabyggð á síðasta ári. Nefndin telur nauðsynlegt að endurskoða þurfi lög um vernd Breiðafjarðar samhliða vinnu umhverfis- og auðlindaráðuneytisins við undirbúning stofnunar Þjóðgarðs.
Fjöldi fólks kom saman í Grundarfirði á mánudag og var ljóst að margir láta sig málefnið varða að því er fram kemur í frétt frá Skessuhorni.
Í fréttinni kemur fram að umræður um þjóðgarð í Breiðafirði hafi vakið ugg hjá fundargestum og hafi mönnum orðið heitt í hamsi. Aðal áhyggjuefnið var möguleg stýring með tilheyrandi boðum og bönnum.
Breiðfirðingar voru allir sammála um áframhaldandi sjálfbæra nýtingu og uppbyggingu á svæðinu.