Eins og fram hefur komið í fjölmiðlumskilaði prófessor Hannes Hólmsteinn Gissurarson loks í gær skýrslu sinni um hrunið. Hannes hefur unnið að gerð skýrslunnar í fjögur ár eftir að Bjarni Benediktsson þáverandi fjármálaráðherra fól Hannesi að stýra rannsóknarverkefninu í júlí árið 2014. Var upphaflega áætlað að verklok yrðu í byrjun september 2015 en útgáfu hennar var frestað í einhvern tíma. Áætlaður kostnaður við verkefnið var metinn um tíu milljónir króna við upphaf þessarar rannsóknar prófessorsins.
Sé litið til viðbragða á samfélagsmiðlum við framlagningu hennar verður ekki annað sagt en viðbrögðin séu blendin. Fáir eru til að fagna skýrslunni en þeim mun fleiri vilja efast um hæfi Hannesar til að fjalla um þetta tiltekna viðfangsefni. Og hæðast að henni sem slíkri fremur en að hún fái einhverja efnislega umræðu.
Nánar á
http://www.visir.is/g/2018180929169/blendin-vidbrogd-vid-skyrslu-hannesar