Við verðum aðallega með hugann við sláandi innihald rannsóknarskýrslu Alþingis um sölu Búnaðarbankans. Hér í lok þáttar sest Pétur Einarsson, fyrrverandi forstjóri Straums og nú kvikmyndagerðarmaður sem þekkir vel til í alþjóðlegu bankaumhverfi og hina svonefndu vogunarsjóði. Vilhjálmur Bjarnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins sem í meira en tíu ár hefur barist fyrir því að málið verði rannsakað mætir í upphaf Þjóðbrautar.:
Sölvi Tryggvason varpar ljósi á stöðu langveikra barna en það yrði sennilega dýrara fyrir ríkið að enda í málaferlum en að sinna skyldum sínum gagnvart langveikum börnum. Þetta segir einn stjórnarmaður í Leiðarljósi, stuðningsfélagi fyrir foreldra langveikra barna. Samtökin eru komin í alvarlega stöðu vegna fjárskorts. Tveir stjórnarmenn í samtökunum verða gestir Sölva, Sigurður Hólmar Jóhannesson og Ásdís Arna Gottskálksdóttir.
Í lok þáttar mætir Pétur Einarsson, fyrrverandi forstjóri Straums og nú kvikmyndagerðarmaður til Lindu. Pétur þekkir vel til í alþjóðlegu bankaumhverfi og hina svonefndu vogunarsjóði. Hann frumsýndi ekki fyrir svo löngu myndina Ransacked þar sem starfsemi vogunarsjóða var afhjúpuð og bankahruninu lýst með áður óþekktum hætti. Hann segir að blekkingum sé víða beitt í fjármálakerfinu þar sem gríðarlegir fjármunir séu geymdir í skattaskjólum. Flétta eins og kemur í ljós við sölu Búnaðarbankans sé algengur gjörningur í alþjóðlegum fjármálaheimi: