Það er ekki hægt að horfa fram hjá því að niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar á Írlandi um lögleiðingu hjónabands af sama kyni er sem blaut tuska í andlitið á kaþólsku kirkjunni.
Þetta segir Gunnlaugur Bragi Björnsson, einn skipuleggjanda Hinsegin daga í fréttaskýringaþættinum Heimsljósi sem frumsýndur verður í kvöld, en þar er fjallað um stöðu samkynhneigðs fólks í heiminum sem er vægast sagt mjög misjöfn. Kosningarnar á Írlandi um síðustu helgi sýna vel þá togstreitu sem enn er milli frjálslyndra og íhaldsamra afla í þessum efnum.
Gunnlaugur segir augljóst að þessi afgerandi stuðningur Íra við hinsegin fólk sýni að gjá sé á milli þjóðar og kaþólsku kirkjunnar. Þá segir hann athyglisvert að fylgjast með fyrstu viðbrögðum kirkjunnar manna sem virðist taka úrslitunum mjög persónulega, og spyrji sig fyrst og fremst að því hvernig þeir hafi brugðist í því að koma boðskapi sínum á framfæri, bæði í kirkjunni og í skólum, í stað þess að hugsa hvernig þeir geti fylgt umburðarlyndari viðhorfum þjóðarinnar.
Gunnlaugur Bragi segir að þessi afgerandi afstaða Íra með lögleiðingu hjónabanda hinsegin fólks vera byr undir alla mannréttindabaráttu í landinu og víðar.
Aðrir viðmælendur í þættinum í kvöld eru Hilmar Hildarson Magnúsarson, formaður Samtakanna 78 og Hrafnhildur Gunnarsdóttir fyrrverandi formaður þeirra en hún þekkir vel aðstæðna samkynhneygðra víða um heim.
Heimsljós í umsjá Sólveigar Ólafsdóttur er frumsýnt klukkan 20.45 í kvöld.