Sumardagurinn fyrsti er á morgun og þá er gert ráð fyrir hægumi vindi og dálítilli vætu öðru hverju á Suður- og Vesturlandi. Annars verði þurrt að kalla og sæmilega hlýtt áfram.
Veðurstofan gerir ráð fyrir suðaustan strekkingi í dag, síðasta vetrardegi, með rigningu og mildu veðri, en víða bjartviðri norðan heiða. Gert er ráð fyrir litlum breytingum í veðri á föstudag. Þá verði dálítil súld fyrir norðan og stöku skúrir syðra, en á laugardag fari væntanlega að rigna sunnan- og austanlands.