Bláa lónið hefur áætlunarferðir

Fyr­ir­tæki á veg­um Bláa Lóns­ins mun á morg­un hefja rekst­ur á eig­in áætl­un­ar­ferðum til og frá Bláa Lón­inu und­ir heit­inu Dest­inati­on Blue Lagoon.

Um er að ræða ferðir í Bláa Lónið frá Reykja­vík og Kefla­vík­ur­flug­velli. Í frétta­til­kynn­ingu frá Bláa lón­inu seg­ir að mark­miðið sé að bjóða gest­um víðtæk­ari þjón­ustu og tryggja sam­ræmi í upp­lif­un þeirra á meðan á heim­sókn þeirra í Bláa Lónið stend­ur.  

Lagt er upp með að ferðirn­ar verði á klukku­tíma fresti en nú þegar bjóða tvö fyr­ir­tæki upp á ferðir af þessu tagi; Kynn­is­ferðir og Gray Line. 

Dest­inati­on Blue Lagoon er fyr­ir­tæki í meiri­hluta­eigu Bláa Lóns­ins hf. en sam­starfsaðili fé­lags­ins í þessu verk­efni er hóp­ferðafyr­ir­tækið Airport Direct ehf., sem er dótt­ur­fé­lag Hóp­bíla hf. 

Um 1,3 millj­ón­ir gesta sóttu Bláa lónið heim á síðasta ári og nam fjölg­un­in milli ára um 16%. Í frétt Morg­un­blaðsins var haft eft­ir Grími Sæ­mundsen, for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, að þrátt fyr­ir hinn gríðarlega fjölda væri enn ekki upp­selt í lónið og að hann gerði ráð fyr­ir 5-6% fjölg­un gesta á nýju ári.

Þá var ný­lega greint frá því að á páska­dag hefði nýtt fimm stjörnu hót­el, The Retreat, við Bláa lónið verið opnað. Ein nótt á hót­el­inu kost­ar frá 144 þúsund krón­um, en gest­irn­ir njóta þjón­ustu einkaþjóna og hafa aðgang að sérbaðlóni.