Ríkisstjórn Helle Thorning-Schmidt, forsætisráðherra Danmerkur er fallin eftir að bandalag hægriflokka í landinu náði 90 sætum á móti 85 sætum vinstri bokkarinnar í landinu.
Þrátt fyrir ósigurinn er flokkur Thorning-Schmidt enn stærsti flokkurinn með 26,3% fylgi og 47 þingsæti, en Danski þjóðarflokkurinn er nærst stærstur með 21,1% fylgi og 37 þingmenn.
Flokkur Lars Løkke Rasmussen, forsætisráðherraefnis bláu blokkarinnar er þriðji stærsti flokkurinn með 19,5% og 34 þingsæti, en Rasmussen hafði tauma dönsku stjórnarinnar í hendi sér fyrir síðustu þingkosningar þegar bandalag vinstrimanna vann kosningarnar.
Kristian Thulesen Dahl, formaður Danska þjóðarflokksins, er ókrýndur sigurvegari kosninganna, en flokkurinn fékk 21,1% atkvæða.
Kosningaþátttaka var 85,8% og hafa 99,8% atkvæða verið talin. Hægri fylkingin er með 51,9%, en vinstri fylkingin fékk 48,1% atkvæða.