Bláa blokkin 51%, rauða blokkin 49%

Danska þjóðin gengur að kjörborðinu í dag og kýs sér nýtt þing en svo mjótt er á mununum á milli rauðu og bláu blokkarinnar að ógerningur er að spá um það hvor þeirra hefur betur í kosningunum þegar upp er staðið. 

Sam­kvæmt nýrri könn­un Ep­ini­on, sem dansk­ir fjöl­miðlar greindu frá í gær, fær bláa blokk­in 51,3% at­kvæða en sú rauða 48,7%. Gangi það eft­ir fær stjórn­ar­andstaðan níu­tíu þing­menn og fell­ir þar með stjórn­ar­meiri­hlut­ann.

Kosn­inga­bar­átt­an hef­ur verið stutt, eins og stundum áður í Danmörku, en Helle Thorn­ing-Schmidt, for­sæt­is­ráðherra Dan­merk­ur og leiðtogi Sósí­al­demó­krata og fyrsti kvenkyns forsætisráðherra landsins, boðaði til kosn­ing­anna 27. maí síðastliðinn.

Tíu flokk­ar eru í fram­boði semr mynda tvö kosn­inga­banda­lög; þeir flokk­ar sem staðsetja sig vinstra meg­in við miðjuna á hinu póli­tíska lit­rófi mynda rauðu blokk­ina, en þar er að finna Sósí­al­demó­krat­a, Ein­ing­ar­listann, Radikale Ven­stre, Sósíal­íska þjóðarflokk­ur­inn og Alternati­vet. Bláa blokk­in sam­an­stend­ur hins veg­ar af Íhalds­flokkn­um, Danska þjóðarflokkn­um, Frjáls­lynda banda­lag­inu og Kristi­leg­um demó­kröt­um. Lars Lokk­eRa­smus­sen, formaður Ven­stre, er for­sæt­is­ráðherra­efni bláu blokk­ar­inn­ar en Thorn­ing-Schmidt þeirr­ar rauðu.

Helstu kosningamálin hafa verið efnahagsmál, velferðarmál og afstaðan til frekari þátttöku í Evrópusambandinu, en innflytjendamálin hafa einnig verið rædd af nokkrum þrótti, ekki síst af bláu blokkinni sem vill stemma stigu við straumi innflytjenda til landsins.