Bjuggu við gengdarlaust ofbeldi

 „Þekkjum rauðu ljósin“ var yfirskrift málþings í fyrradag sem haldið var af Bjarkarhlíð miðstöð fórnarlamba ofbeldis, Kvennaathvarfinu, Samtökum kvenna af erlendum uppruna Jafnréttisstofu, Lögvís lögmannsstofu, auk kvenna sem komið hafa fram í tengslum við Metoo-fjölskyldutengs. 

Markmiðið er að beina sjónum að vangetu stjórnkerfisins til að takast á við ofbeldi í nánum samböndum og úrræðaleysi gagnvart gerendum. Fjallað var um ofbeldið sem kerfið lítur framhjá og ósýnileika gerenda. 

 Margir tóku til máls og á málþinginu héldu m.a. erindi þær Áslaug María, sem starfar sem markþjálfi og var þolandi kynferðis- og heimilisofbeldis í uppvexti sínum og einnig á fullorðinsárum. Sonja Einarsdóttir  MA í félagsfræði var sömuleiðis þolandi heimilisofbeldis en komst út úr ofbeldisfullu hjónabandi fyrir ekki svo löngu.  

Sonja talar um eigin reynslu um kerfið sem hún þurfti að takast á við eftir að ofbeldissambandi hennar lauk. Að hennar mati er kerfið þungt, svifaseint og kostnaðarsamt. Frá því að sambandi hennar lauk, fyrir einu og hálfu ári síðan, hefur enn ekki verið hægt að ljúka málum og á meðan verður hún fyrir stöðugu áreiti af hálfu gerandans en alls hefur fyrrverandi eiginmaður hennar fengið fimm sinnum á sig nálgunarbann.

Áslaug bjó við ítrekað kyn­ferðis­legt, lík­am­legt og and­leg of­beldi af hendi bæði móður sinnar og föður frá því hún var fjög­urra til fimmtán ára göm­ul. Á yfirborðinu segir hún að allt hafi verið slétt og fellt og rúmlega það. Hins vegar bjó hún við hryllilegt ofbeldi þar sem foreldrar hennar sögðu henni að hún ætti skilið að deyja, væri ógéð, hóra og lygari og enn fleira þar frameftir götunum. Faðir hennar misnotaði hana sem svo jókst og varð daglegt þegar hún varð kynþroska. Móðir hennar barði hana reglulega svo eitt sinn blæddi henni og hún taldi sig kafna til dauða þar sem móðir hennar tók hana slíku hálstaki.  

Bæði Sonja og Áslaug hafa unnið úr reynslunni og skemmdri sjálfsmynd eftir langt ofbeldi. Þær vilja umfram allt telja kjark í fólk, konur, karla og börn, til að komast úr lífhættulegum aðstæðum sem ofbeldið og meðvirknin með gerandanum skapar. Þær segja alltaf von til að komast úr aðstæðunum með hjálp starfsmanna Bjarkarhlíðar og fleiri og ítrekar Áslaug að best sé að undirbúa flóttann vel og vandlega með góðra manna hjálp. 

Þjóðbraut er endursýnd í dag og um helgina en er einnig aðgengileg á vefnum hringbraut.is undir flipanum sjónvarp.