Bjuggu í þýskalandi kommúnismans

Í Sögustund með Sigmundi Erni og Lindu Blöndal á Páskadag var fjallað um Alþýðulýðveldið Þýskaland sem leið undir lok haustið 1990, fyrir 28 árum síðan. Hvað upplifðu Íslendingar sem bjuggu í leyniþjónusturíki eins og Austur Þýskalandi á þeim tíma þegar besti vinur manns gat verið Stasínjósnari?

Í þættinum Sögustund mættu gestir sem báðir bjuggu austan tjald, þó á ólíkum tímaskeiðum og í ólíkum borgum.

Jón Bernódusson, skipaverkfræðingur hóf háskólanám í Rostock í Austur Þýskalandi haustið 1974 strax eftir stúdentspróf úr MH og dvaldi þar við nám í fimm ár. Kristín Jóhannsdóttir fékk námsvist fyrir austan járntjaldið 1987 í Leipzig til að nema bókmenntafræði og sagnfræði – og skrifaði sögu sína frá þeim tíma í bókinni Ekki gleyma mér sem kom út fyrir síðustu jól. Bókin byggir hún á ítarlegum dagbókarskrifum sínum.

Jón lauk prófi febrúar 1979 – það líða svo sumsé átta ár þangað til Kristín heldur austur fyrir múrinn.

Þáttinn má sjá hér að neðan: