Guðmundur Brynjólfsson djákni fylgist með pólitíkinni, rétt einsog flestir landsmenn. Hann var að hlusta á Útvarp Sögu.
„Það getur verið gagnlegt að hlusta á þá merku stöð Útvarp Sögu; nú fyrir nokkrum mínútum kallaði, í beinni útsendingu, Björt Ólafsdóttir þingmaður BF, píratann Birgittu Jónsdóttur lygara - og það tæpitungulaust. Gaf einnig til kynna að hún hefði ekki áhuga á að vinna með slíkum karakter. Sé ég því ekki betur en fleygur sé þá þegar í fimmflokka mekanóinu. Hitt kom mér ekki á óvart að upp fokkaðist D+C+A, þau málalok hef ég verið að segja hverjum sem heyra vildi í heila viku,“ skrifar Guðmundur á Facebook.