Björt framtíð nær flugi

Ný könnun Fréttablaðsins í dag sýnir nokkuð breytt fylgi frá síðustu könnun blaðsins fyrir viku. Helst vekur athygli að Björt framtíði bætir við sig fylgi og myndi ná manni á þing. Flokkurinn mælist með 6,9 prósenta fylgi í könnu sem gerð var dagana 3. og 4. Október, eða í gær og fyrradag. Sjálfstæðisflokkur mælist með 25,9 prósenta stuðning sem er heldur minna en í síðustu könnun. Píratar koma næstir með rúmlega 19 prósenta fylgi, aðeins minna en síðast. Vinstri græn eru á svipuðu róli og síðast, núna með 12,6 prósenta fylgi. Framsókn virðist fá aukinn stuðning með aukinni athygli síðustu daga og mælist með 12,6 prósenta fylgi í stað 11,4 prósent fyrir viku.  

Samfylkingin fer úr 5,9 prósentum frá í síðustu könnun og upp í 8,8 prósent en er þó langt frá kjörfylgi sínu. Viðreisn er með svipaðan stuðning og áður, mælist nú með rúmlega 7 prósenta fylgi.

Alþýðufylkingin og Íslenska þjóðfylkingin mælast með um 2 prósenta fylgi hvort.

Breytingar á fylgi Pírata, Framsóknar og VG á milli vikna er innan skekkjumarka.