Björt framtíð loks yfir 5% fylgi

Óverulegar fylgisbreytingar eru í íslenskri pólitík þessa dagana að því er fram kemur í nýrri skoðanakönnun markaðs- og upplýsingafyrirtækins MMR, en þó er Sjálfstæðisflokkurinn heldur að braggast og Björt framtíð sömuleiðis.

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 25,3%, borið saman við 23,1% í síðustu könnun. Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 11,4%, borið saman við 12,2% í síðustu könnun. Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 10,6% borið saman við 9,6% í síðustu könnun. Fylgi Vinstri-Grænna mældist nú 9,6%, borið saman við 10,2% í síðustu könnun. Fylgi Bjartrar framtíðar mældist nú 5,8%, borið saman við 4,4% í síðustu könnun. Fylgi annarra flokka mældist undir 1%. 

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 34,4% en mældist 33,2% í síðustu mælingu.