Björt framtíð jöfn flokki fólksins

Björt framtíð og Flokkur fólksins mælast með sama fylgi í nýrri könnun MMR - hvort um sig með 3,2 prósenta fylgi. Viðreisn mælist með fimm prósent.

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist 31,4 prósent í nýrri könnun MMR sem gerð var 11. – 26. apríl síðastliðinn. Mælt var fylgi stjórnmálaflokka og stuðningur við ríkisstjórnina. Sjálfstæðisflokkurinn mælist stærstur eða með rúmlega 25 prósenta fylgi og Vinstri grænir næst stærstir með 23,4 prósent. Stuðningur við Pírata mælist tæplega 13 prósent og rúm 11 prósent við Framsókn. Rétt á eftir mælist Samfylkingin með tæplega 11 prósenta fylgki en Viðreisn með einungis 5 prósent. Björt framtíð og Flokkur fólksins eru nú jafn stór og mældust hvort um sig með 3,2 prósenta fylgi.

Svarendur voru 926 einstaklingar, 18 ára og eldri.