Forkólfar Bjartrar framtíðar ætla ekki bjóða fram lista í nafni flokksins komandi borgarstjórnarkosningum. Þetta staðfestir Björt Ólafsdóttir, formaður flokksins, við Fréttablaðið í dag.
Eins og greint hefur verið frá hafa þreifingar verið milli Bjartrar framtíðar og Viðreisnar um samstarf í sveitarstjórnarkosningum, bæði í borginni og í öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Nú liggur fyrir að ekki verður af slíku samstarfi í Reykjavík og Björt framtíð mun heldur ekki bjóða fram sér í borginni.