Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlindaráðaherra var spurð hver stefna hennar væri varðandi olíuleit á Drekasvæðinu og mögulega olíuvinnslu þar.
Björt svaraði þessu stutt og skýrt - Ráðherra er andvíg olíkuvinnslu á Drekasvæðinu.
Ekki er að sjá að Björt sé andvíg olíuleit á Drekasvæðinu.
Björt er einnig andvíg framlengingu sérleyfis en leyfisveitingar vegna slíkra leyfa falla þó ekki undir hennar verksvið.
Eitt sérleyfi er nú gilt fyrir leit á Drekasvæðinu. Leyfishafar eru þrír - ríkissjóður alþýðulýðveldisins Kína - handhafi þessa leyfis er kínverska ríkisolíufélagið CNOOC; og svo PETORO fyrir hönd ríkissjóðs Noregs og loks er íslenska félagið Eykon Energy.
rtá
Nánar www.althingi.is www.petoro.no