Björn Zoëga hefur verið ráðinn forstjóri Karólínska sjúkrahússins í Stokkhólmi í Svíþjóð. Björn, sem er fyrrverandi forstjóri Landspítalans, mun taka við stöðunni í vor eða snemma sumars. Markaðurinn greinir frá.
Í frétt heilbrigðisumdæmisins í Stokkhólmi um ráðninguna er haft eftir Birni að hann fyllist bæði stolti og ánægju vegna hennar. Hann segir aðstæður á Karólínska sjúkrahúsinu vera í heimsklassa og að hann muni takast á við þær áskoranir sem starfinu fylgja.