Þótt óhætt sé að segja að Björn Valur Gíslason, varaþingmaður VG, sé ekki í hópi heitustu aðdáenda ríkisstjórnar Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, hvarflar ekki að varaþingmanninum að skipa sér í hóp þeirra sem telja að forseti Íslands mundi ekki staðfesta fjárlög. Björn Valur hefur í pistli á eigin bloggsvæði brugðist við skrifum Þorsteins Pálssonar, fyrrum forsætisráðherra, á Hringbraut. Þar velti Þorsteinn upp hvort forseti Íslands myndi synja fjárlögum staðfestingar.
Pistill Björns Vals ber yfirskriftina: „Þorsteini Pálssyni fatast flugið“. Þar skrifar BVG meðal annars og vísar í pistil Þorsteins:
„Í fyrsta lagi þá var lögð fram tillaga um afturvirkar bætur til öryrkja og aldraða við afgreiðslu fjáraukalaga yfirstandandi árs en ekki fjárlaga næsta árs. Staðfesting eða höfnun forsetans á fjárlögum næsta árs breytir því litlu um í þeim efnum.
Í öðru lagi þá var tillaga minnihlutans um bætur til þessa hóps við afgreiðslu fjárlaga felld en sú tillaga snéri að kjarabótum til þess hóps frá og með 1. maí á næsta ári sambærilegum þeim sem aðrir launþegar fá á næsta ári.
Í þriðja lagi er það heldur ódýrt hjá Þorsteini að leggja málin þannig upp að með staðfestingu forsetans á fjárlögum næsta árs megi lýta [svo] þannig á að ekkert að marka orð hans um að við sem þjóð höfum ekki staðið okkur við að verja hag aldraðra og öryrkja.
Í fjórða lagi verður það ekki forseti Íslands sem hvítþvær Bjarna Benediktsson í afstöðu hans til kjara aldraðra og öryrkja með því að vísa til afstöðu forsetans um sama mál. Það kemur í hlut annarra að sjá um þann þvott.
Í fimmta lagi er Þorsteinn Pálsson beinlínis í grein sinni að gera ráð fyrir því að forseti Íslands sé einhverskonar gæðastjóri á lagafrumvörp, hafni þeim eða samþykki á víxl eftir því hvernig honum lýst [svo] á afurðina. Það er glórulaus pæling.“
Við þetta bætir Björn Valur að forsetinn muni að sjálfsögðu staðfesta fjárlög næsta árs.
„Þó það nú væri. Rétt eins og hann staðfesti fyrri fjárlög hægristjórnarinnar þó þau fælu í sér afnám auðlegðarskatts, lækkun veiðigjalda og 60% hækkun á matarskatti sem hefur komið sér verst fyrir þá sem verst höfðu það fyrir. Sú staðfesting er enginn gæðastimpill á þá lagasetningu og segir ekkert um hvort forsetinn er sammála öllu því sem þar stendur.
Enda kemur honum það hreint ekkert við.“