Björn Valur Gíslason, varaformaður VG, hefur ákveðið að færa sig um set og fara fram í Norðausturkjördæmi fyrir næstu alþingiskosningar. Þetta staðfestir Björn Valur í samtali við Hringbraut.
Hann bauð sig fram í öðru Reykjavíkurkjördæmanna síðast en hlaut ekki brautargengi. Áður hafði hann setið sem þingmaður VG fyrir Norðausturkjördæmi og starfaði í Vinstri stjórn Samfylkingar og VG m.a. sem formaður fjárlaganefndar Alþingis.
Björn Valur segir um ástæður þess að hann ætli að bjóða sig fram fyrir norðan að Norðausturkjördæmi sé hans heimakjördæmi og góð færi séu í kjördæminu.