Björn Þorláksson, fréttamaður og upplýsingafulltrúi til áratuga, segir að ef knattspyrnuhetjan Gylfi Sigurðsson sé sekur um það sem hann er sakaður um þá þurfi að vanda vel til verka við að ræða við æsku landsins.
Líkt og greint hefur verið frá var Gylfi handtekinn af lögreglunni í Manchester í síðustu viku. Er hann nú til rannsóknar vegna meints brots gegn barni, að því er mbl.is greinir frá.
Unnið er að því að fjarlæga markaðsefni með Gylfa Þór egna orkudrykkjarins State Energy sem uppstillt er í verslunum Hagkaupa. Lögreglan ytra vill ekki segja hvort Gylfi sé í farbanni.
Björn, sem er mikill reynslubolti úr almannaumræðunni, segir á Facebook:
„Innst inni vonar maður að þetta sé vondur draumur, byggður á misskilningi. Fann vel í gærkvöld fyrir djúpstæðri afneitun og óskhyggju um að mál væru með öðrum hætti en sagt hafði verið frá. Eitt andartak fannst mér ég fá nýjan skilning á hugarheimi fjölskyldumeðlims sem neitar að horfast í augu við veruleikann. Við höfum stundum ekið suður á landsleik - tekið 800 km rúnt - bara til að sjá töfra þessa átrúnaðargoðs og máttarstólpa fyrir landið,“ segir hann.
„Ef Gylfi er sekur verður að vanda vel til verka að ræða við æsku landsins og þá ekki síst íþróttaæskuna um þetta ofurviðkvæma mál - til að jörðin hreinlega opnist ekki undir smáum fótum. Kannski þufum við öll að vanda okkur heilmikið núna til að traust gagnvart hinum stóru og sterku fjúki ekki út í hafsjó.“