Björn þ. guðmundsson er látinn

Björn Þ. Guðmundsson fæddist 13. júlí 1939 á Akranesi. Hann lést á Landakotsspítala 16. Maí 2019. Björn var sonur hjónanna Guðmundar Björnssonar frá Núpsdalstungu í Miðfirði. Björn kvæntist 20. nóvember 1960 Þórunni Bragadóttur, fyrrum deildarstjóra í menntamálaráðuneytinu, f. 13. september 1940.

\"\"Björn ólst upp á Akranesi en að loknu námi bjó hann með eftirlifandi eiginkonu sinni fyrst í Reykjavík en síðan á Seltjarnarnesi þar sem þau hjónin reistu sér hús sem þau bjuggu í frá 1990. Björn lauk stúdentsprófifrá Menntaskólanum á Akureyri 1959 og embættisprófi, cand.juris, frá Háskóla Íslands 1965. Þá stundaði Björn framhalds-nám í alþjóðarétti með flug- og geimrétt sem sjálfstætt rannsóknarsvið við Ludwig-Maximilians-Universität í München 1965-66.

Auk þess lagði hann stund á rannsóknir á sviði mannréttindalöggjafar í Bandaríkjunum 1971. Björn var skipaður fulltrúi hjá yfirborgardómaranum í Reykjavík frá 1966 til 1972. Skipaður borgardómari í Reykjavík frá árinu 1972 til 1979. Björn var settur prófessor í lögfræði við lagadeild Háskóla Íslands 1978 og skipaður prófessor ári síðar. Þar kenndi hann eignarrétt, veðrétt, sifjarétt og persónurétt en lengst af stjórnsýslurétt allt þar til hann lét af störfum árið 2004.

Björn var bæði varaforseti og forseti lagadeildar Háskóla Íslands um margra ára skeið. Björn var varadómari í Hæstarétti Íslands frá 1972 og settur hæstaréttardómari 1998. Sat hann í fjölda mála í Hæstarétti, einkum hin síðari ár. Jafnframt gegndi Björn ýmsum félags- og trúnaðarstörfum.

Þá var Björn einn af stofnendum Íslandsdeildar Amnesty International og fyrsti formaður.

Eftir Björn liggur fjöldi fræðigreina á sviði lögfræði sem birtust í íslenskum og erlendum fræðiritum. Björn var einnig höfundur að Formálabókinni þinni, útg. 1975, og Lögbókinni þinni sem gefin var út 1973 en endurútgefin endurskoðuð 1989.

Þótti Lögbókin þín marka tímamót sem einstakt fræðirit á sviði lögfræðinnar en verkið var í senn hugsað sem lögfræðiorðabók og lögfræðihandbók bæði fyrir almenning og löglærða.