Björn tapaði tugum þúsunda og var heppinn að missa ekki meira

Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, greindi frá því í fréttaskýringaþættinum Kveik í kvöld að hann hefði tapað 70.000 krónum í netsvindli, og í raun væri hann heppinn að hafa ekki tapað meiru.

Hann segist hafa fallið fyrir freistandi auglýsingu á Facebook.

„Og ég var alveg undrandi í raun og veru að sjá hvað það voru margar auglýsingar um gylliboð sem þekktir Íslendingar komu nálægt og fólk sem ég þekkti var að mæla með að nýta sér þetta tækifæri. Og svona er maður áhrifagjarn að ég ákvað að prófa að sjá hvernig þetta gengi fyrir sig,“ sagði Björn.

Hann segir að síðan hafi vinalegur þjónustufulltrúi, sem hafði greinilega flett honum upp, haft samband við hann. Björn var beðinn um að senda afrit af vegabréfinu sínu og fleiri skjölum, og þá ákvað hann að hægja á sér. Hann ræddi við kunningja sinn sem sagði honum að líklega væri um að ræða svikamyllu.

Þá lokaði Björn greiðslukortinu sínu, og í kjölfarið fékk hann aftur símtal frá þjónustufulltrúanum sem: „trúði því nú varla fyrst að ég væri efins um að þetta væru góð viðskipti og sýndi mér tölur sem áttu að sanna að bara á þessum tólf tímum, hvað það var sem liðnir voru frá því að ég stofnaði til samskipta við þá, hafði féð ávaxtast á glæsilegan hátt. Það virkaði þannig að það var mjög trúverðugt allt sem þessir menn sögðu og allt það sem þeir buðu og allt það sem þeir sýndu mér í símtölunum og gátu látið mig opna einhverjar síður sem áttu að sýna hvernig ávöxtunin hefði gengið fyrir sig. Og hvað þetta væri allt traustvekjandi og glæsilegt,“ 

Fyrrverandi ráðherrann slapp því ansi vel, en í þættinumvar einnig rætt við mann sem tapaði fleiri milljónum á svipuðu svindli.