Björn Steinbekk, athafnamaður og foreldri í Fossvogi, er brjálaður út í Dag B. Eggertsson borgarstjóra og Lilju Alfreðsdóttur menntamálaráðherra. Í færslu sem hann skrifar í íbúahóp Smáíbúðahverfisins á Facebook biður hann þau bæði um viðbrögð og segir:
„„Myndir þú sætta þig við sömu vinnuaðstöðu og börnin í Fossvogsskóla og Kvistaborg? Upp er komin mygla í enn og aftur og segir sagan, sem skólastjórnendur hvorki neita né játa, að þessir bekkir eigi að vera í útikennslu fyrstu vikurnar (svona svipað og þú mættir í vinnuna og yrði sagt að fara með tölvuna eða verkfærin þín í Húsdýragarðinn í 8 tíma). Já, enn heldur meirihlutinn í Reykjavík og embættismenn borgarinnar áfram að brjóta lög um skólahald og kennslu,“ segir Björn.
Mygla kom upp í húsnæði Fossvogsskóla og er nú aftur reynt að vinna í að bæta húsnæðið. Í vetur fer skólastarf í Fossvogsskóla fram í færanlegum kennslustofum og í Korpuskóla. Kennslustofurnar, sem verða á bílastæði starfsmanna, sem eiga að taka á móti yngsta skólastiginu í eru ekki klárar og því munu krakkarnir fá kennslu í Víkinni, félagsheimili Víkings, þangað til. Við það eru foreldrar ekki sáttir.
Björn heldur áfram:
„Kvistaborg er svo enn ein hörmungin. Þar hefur ekki verið lyft hamar eða rökhugsun í allt sumar og börnin send um hvippinn og hvappinn (vona að þetta sé rétt stafað). Það er verið að brjóta lög sem eiga að tryggja börnum okkar viðunandi starfsumhverfi og menntun.“
Foreldrafélag Fossvogsskóla hefur sent frá sér harðorða yfrlýsingu sem sjá má hér að neðan.
Komið er upp neyðarástand í húsnæðismálum 2.-4. bekkjar í Fossvogsskóla í byrjun skólaárs. Skólayfirvöld í Reykjavík hafa ákveðið að hola minnst 130 börnum í kjallara og anddyri íþróttahúss Víkings. Umrætt húsnæði er fullkomlega óboðlegt sem kennsluhúsnæði og lýsir valið á húsnæðinu dómgreindarleysi skólayfirvalda á þörfum barna og starfsfólks í námi og starfi. Mál er að linni. Við skorum á borgaryfirvöld að bregðast við og finna án tafar viðeigandi og heilsusamlegt húsnæði fyrir þessi 7, 8 og 9 ára gömlu börn og kennara þeirra. Ekki má fórna einum einasta skóladegi fyrir vandræðagang og vanhöld borgaryfirvalda í málinu.
Stjórn foreldrafélagsins lýsir furðu á seinagangi yfirvalda og úrræðaleysi þessa stærsta sveitarfélags landsins, þegar ljóst var fyrir mánuði síðan að færanlegar kennslustofur yrðu ekki tilbúnar í tæka tíð. Börn og starfsfólk Fossvogsskóla hafa verið á vergangi meira og minna í tæp þrjú ár og stærstan hluta þess tíma vegna aðgerðarleysis borgaryfirvalda. Starfsfólk og foreldrar hafa sýnt vanmætti yfirvalda langlundargeð, langt umfram það sem til má ætlast. Enn höggva borgaryfirvöld í sama knérunn og misbjóða umbjóðendum sínum. Kennarar og starfsfólk sem leitað hafa til okkar eru uppgefin og raunveruleg hætta er á að fleiri reynslumiklir starfsmenn yfirgefi skólann en gerðu síðastliðið vor. Foreldrar vilja stöðugleika og námsfrið fyrir börnin og sumir hverjir eru að leita hófanna í öðrum skólum af þeim sökum.
Jafnframt lýsir stjórn vonbrigðum með samskiptaleysi við foreldra og starfsfólk. Líkt og lög kveða á um starfar skólaráð við Fossvogsskóla og í því eiga foreldrar og starfsfólk fulltrúa. Lögboðið hlutverk skólaráðs felst m.a. í að vera umsagnaraðili um meiriháttar breytingar á skólastarfi og vaka yfir heilsu og vellíðan nemenda í hvívetna. Skólaráð hefur ekki verið virkjað á neinum tímapunkti í aðdraganda skólabyrjunar, þrátt fyrir augljósa þörf. Fulltrúar foreldra og starfsfólks frétta af málefnum skólans í gegnum fjölmiðla og klórþvegnar fréttatilkynningar skólayfirvalda og upplýsingafulltrúa borgarinnar. Samstarf við skólasamfélagið er hverfandi nú líkt og oft áður, þrátt fyrir loforð um bót og betrun úr ræðustóli borgarstjórnar.