Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, segir að Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði, hafi jarðað kenningu með Ólína Þorvarðardóttir, fræðimaður og fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, hafi viðrað um Halldór Laxness.
Björn fjallar um þetta á vef sínum í dag og segir: „Samsæriskenninguna bar hátt í ritdeilu sem ég átti við dr. Ólínu Þorvarðardóttur á liðnum vetri en hún endurtók hana í bók sem hún ritaði sjálfri sér til varnar þar sem hún hefur ekki fengið opinbera stöðuveitingu frá því að ég skipaði hana skólameistara Menntaskólans á Ísafirði upp úr aldamótunum, stöðu sem hún sagði sig sjálf frá nokkrum árum síðar vegna ástands innan skólans.“
Hann segir að Hannes hafi „jarðað“ kenninguna í grein á vef Conservative: „Frásögn Hannesar Hólmsteins er ítarleg til að kynna erlendum lesendum sínum aðdraganda innlendra ásakana um að bækur Halldóra Laxness hafi hætt að koma út í Bandaríkjunum í kringum 1950 vegna samsæris íslenskra stjórnvalda og bandarískra þar sem Edgar J. Hoover, forstjóri bandarísku alríkislögreglunnar, FBI, hafi gegnt aðalhlutverki ásamt Bjarna Benediktssyni, dómsmála- og utanríkisráðherra Íslands.“
Björn segir að í bókinni hafi Ólína ekki aðeins sig um óvild í sinn garð heldur ýmsa aðra og sett sjálfa sig á bekk með Halldóri Laxness sem hafi mátt búa við sambærilegar pólitískar ofsóknir og hún. „Innlendir pólitískir andstæðingar hans hafi hindrað útgáfu bóka hans í Bandaríkjunum eftir útgáfu á Sjálfstæðu fólki þar. Rökstuddi dr. Ólína þessar fullyrðingar með því að vitna í ævisögu Halldórs Guðmundssonar um Laxness,“ segir Björn. „Hugboð mitt hefur jafnan verið að þetta væri eins og hver önnur vinstrisinnuð samsæriskenning til að upphefja samherja á kostnað annarra. Aldrei hefur hvarflað að mér að af hálfu föður míns hafi verið leitast við að bregða fæti fyrir útgáfu verka Laxness í Bandaríkjunum og samtal mitt við skáldið um miðjan áttunda áratuginn um útgáfu verka hans í Bandaríkjunum staðfesti þetta hugboð mitt.“