Ráðherrarnir fyrrverandi Björn Bjarnason og Sturla Böðvarsson vanda RÚV ekki kveðjurnar eftir frétt í hádegisfréttunum um að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra hafi hringt í Höllu Bergþóru Björnsdóttur, lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu, á aðfangadag og spurt hvort lögreglan ætlaði ekki að biðjast afsökunar á að hafa upplýst almenning um sóttvarnarbrot í Ásmundarsal þar sem Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra var viðstaddur.
RÚV hafði þetta eftir öruggum heimildum af lokuðum fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis í mars þar sem Halla Bergþóra sat fyrir svörum þingmanna.
Björn fer beint í blaðamanninn: „Þegar sjálf Sunna Valgerðardóttir kemur ábúðarmikil í upphafi fréttatíma og les leka frá stjórnarandstöðunni um samtal við lögreglustjóra á trúnaðarfundi með stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd alþingis vegna símtals fyrir hálfu ári út af samkvæmi á Þorláksmessu er fokið í öll skjól þeirra sem leggja allt undir til að halda lífi í málinu,“ segir Björn á Facebook.
„Lögreglustjórinn hefur sektað húsráðendur og situr uppi með tilmæli frá eftirlitsnefnd með störfum lögreglumanna vegna ámælisverðrar framgöngu þeirra lögreglumanna sem hlut áttu að máli.“
Björn segir að fréttin sé gerð í kosningabaráttu:
„Lyktum málsins er sleppt í fréttinni en tilgangur hennar er vindhögg á dómsmálaráðherra í von um að bæta stöðu þeirra sem blésu þetta smáatvik úi fyrir öll skynsamleg mörk: fréttastofu RÚV, Kjarnann, Samfylkinguna og Pírata. Nú er blásið til kosningabaráttu!“
Sturla er sammála:
„Því miður leitar fréttastofa RUV allra leiða til þess að koma höggi á sjálfstæðismenn og koma illu til leiðar.“