Evrópusambandið þarf að líta sér nær

Lyktir frönsku forsetakosninganna síðastliðinn sunnudag og staðan í evrópskum stjórnmálum er til umfjöllunar í fréttaskýringaþættinum Ritstjórunum á Hringbraut þessa vikuna. Þátt er nú hægt að sjá hér á vef stöðvarinnar.

Sessunautar Sigmundar Ernis að þessu sinni eru þeir Björn Bjarnason, fyrrverandi aðstoðarritstjóri Morgunblaðsins og síðar þingmaðurr og ráðherra og Bogi Ágústsson, fyrrverandi fréttastjóri RÚV og fréttamaður til áratuga, en báðir gjörþekkja þeir evrópsk stjórnmál og sögu frönsku flokkapólitíkurinnar á umliðnum árum og áratugum. Og þar ber nýrra við, því ekki hefur það gerst í næstum sextíu ár að hvorugur stóru flokkanna í Frakklandi eigi fulltrúa í seinni umferð forsetakosninganna. Hvað merkir það? Hvað er yfirleitt að gerast í evrópskum stjórnmálum?

Þeir Björn og Bogi velta því einnig fyrir sér í þættinum hvaða áhrif lyktir frönsku forsetakosninganna hafa á þróun Evrópusambandsins, en nýkjörinn forseti Frakklands, Emmanuel Macron, talar fyrir töluverðum breytingum á sambandinu, sem er eitthvað sem Þjóðverjum hugnast ekkert sérlega vel. En hvor hefur þar betur, Macron eða Merkel?

Það er margs að spyrja í Ritstjóraþætti vikunnar - og það stendur heldur ekki á svörunum, svo mikið er víst.

Ritstjórarnir eru frumsýndir öll þriðjudagskvöld klukkan 21:00.