Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, segir stundum gott að klaga aðra, það að tala um klöguskjóður sé stór hluti af gerendameðvirkni sem þjóðfélagið hafi orðið vitni af á síðustu árum. Í grein í Morgunblaðinuí dag nefnir hann sérstaklega lögreglumennina sem stöðvuðu gleðina í Ásmundarsal á Þorláksmessu þar sem Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, var viðstaddur.
„Klöguskjóður og stríðnispúkar eru ekki rót alls ills en viðbrögðin sem við notum til þess að sleppa við að glíma við vandann eru stór hluti þeirrar gerendameðvirkni sem við höfum orðið vitni að á undanförnum árum,“ segir Björn Leví.
Fjölmargir hafa gagnrýnt lögreglumennina vegna þess hvernig þeir töluðu við hvorn annan, náðist það á upptöku á búkmyndavélum.
Annar lögreglumaðurinn: „Hvernig yrði fréttatilkynningin… 40 manna einkasamkvæmi og þjóðþekktir einstaklingar… er það of mikið eða?“
Hinn lögreglumaðurinn: „Ekki fyrir mig, ég myndi lesa það… Ég þekkti tvær stelpur þarna uppi og þær eru báðar sjálfstæðis… svona… framapotarar eða þú veist.“
Björn Leví kemur þeim til varnar:
„Það má ekki tala um rökstuddan grun eða birta hljóðupptökur af opinberum persónum. Svo mega lögreglumenn ekki spjalla sín á milli á „óviðeigandi“ hátt, sérstaklega ekki ef það var verið að klaga frá því sem yfirvaldið var að gera,“ segir hann. „Gerendameðvirkni og stríðni eru flókin fyrirbæri. Það er ekki til nein töfralausn við þeim en ég tel að þessi gamli vani hafi víðtækari áhrif en við gerum okkur grein fyrir og við þurfum að gera betur.“