Björn Leví: „Þetta er hvítþvottur sem enginn á að falla fyrir“

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, segir að ekki ætti að taka til greina Landsréttarreynslu dómaranna sem voru ólöglega skipaðir í Landsrétt þegar þeir sækja um nýju. Í grein sem Björn Leví skrifar í Morgunblaðiðí dag segir hann það vera fyrirsjáanlega niðurstöðu þegar dómararnir, sem voru á sínum tíma ólöglega skipaðir í Landsrétt, sækja um nýju í embættið.

„Ef skip­un þeirra var ólög­leg þá er reynsla þeirra einnig ólög­lega feng­in. Þetta er hvítþvott­ur sem eng­inn á að falla fyr­ir. Ef dóm­ar­arn­ir hefðu strax sagt af sér og komið sem um­sækj­end­ur um nýj­ar stöður án ólög­leg­ar reynslu, þá væri þetta ekki vanda­mál,“ segir hann.

„Vanda­málið snýst nú um dómgreind. Hér er um að ræða dóm­ara sem leggja sjálf­ir mat á eigið hæfi. Þess­ir dóm­ar­ar vita að skip­un þeirra var ólög­leg en sitja samt sem fast­ast.“

Staðan sé nú þannig að óbreytt­ir borg­ar­ar þurfi að mæta fyr­ir þessa dóm­ara og treysta á dómgreind þess­ara dóm­ara til þess að leysa mál sín.

„Þrem­ur dóm­ar­anna finnst í fína lagi að fá smá hvítþvott en einn er enn í leyfi.“