Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, segir Bjarna Benediktsson, fjármálaráðherra, beita lagatæknilegum fimleikum þegar hann segi að kakan, sem eru bætur til öryrkja, fari stækkandi. Öryrkjabandalagið og Bjarni hafa deilt um kökuna núna í vikunni, sagði Bjarni á miðvikudaginn að myndband ÖBÍ um að öryrkjar fái sífellt minni sneið af kökunni missi marks. „Ég heyri ákall Öryrkjabandalagsins um að hækka bætur enn frekar. Myndband þeirra er hins vegar misheppnað, þótt kakan sé falleg eftirmynd af þeirri sem ég gerði. Það dugar ekki til, því það er rangt að öryrkjar fái sífellt minni sneið. Kakan hefur stækkað og almannatryggingar hafa fengið stærri sneið af stækkandi köku,“ sagði Bjarni.
Björn Leví segir í grein á Vísiað frá árinu 1997 hafi lífeyrir almannatrygginga ekki hækkað samkvæmt launaþróun eða verðbólgu í 18 skipti á þeim 24 árum. Ef svo haldi áfram verði uppsöfnuð kjaragliðnun 58 prósent á næsta ári.
„Svo virðist sem ákveðið hafi verið að túlka lögin á þann hátt að hækkun lífeyris myndi aðeins miðast við áætlaða þróun launa eða neysluverðs. Ekki raunverulega hækkun. Það er einstaklega kaldhæðnislegt ef nýleg lög um laun æðstu ráðamanna eru skoðuð, þar skal reikna raunverulega hækkun,“ segir Björn Leví.
Hann segir að umræðan sé aldrei auðveld þar sem kerfið sé svo flókið. „Þetta þýðir að það er aldrei hægt að draga upp einfalda samanburðarmynd. Hún er alltaf háð ákveðnum skilyrðum,“ segir Björn Leví.
„Það ætti að vera augljóst öllum sem lesa texta laganna að ætlunin er að lífeyrir almannatrygginga hækki aldrei minna en raunveruleg launaþróun eða vísitala neysluverðs, hvor sem er hærri. Annað væri bókstaflega galið. Einhvern veginn hefur fjármálaráðuneytið hins vegar náð að snúa út úr með einhvers konar lagatæknilegum fimleikum og Alþingi hefur leyft því að viðgangast. Kökunni er lofað en loforðið er svikið.“