Fyrstu viðbrögð Björns Levís Gunnarssonar, þingmanns Pírata, við nýrri fjármálaáætlun ríkisins eru að „ríkisstjórnin er hætt.“
Þetta segir Björn Leví um áætlunina, sem Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra kynnti í dag.
Skjáskot/Facebook
Hann vitnar í fjármálaáætlunina sjálfa, þar sem segir „tímabil fjármálaáætlunar fellur til á kjörtímabili næstu ríkisstjórnar og að næsta fjárlagafrumvarp, sem tekur til fyrsta árs áætlunarinnar, verður lagt fram af hálfu nýrrar ríkisstjórnar og mun byggjast á nýrri fjármálastefnu sem mun þurfa að leggja fram samhliða því.“