Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, sakar hina stjórnarandstöðuflokkanna um að hafa leikið pólitíska leiki á næstsíðasta þingi. Björn Leví segir í myndbandi Pírata að stjórnarandstaðan hafi reynt að koma í veg fyrir ríkisstjórnin næði í gegn málum, skipti engu hvort þau væru góð eða ekki. Ræðst hann þannig að Loga Einarssyni og félögum í Samfylkingunni, Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni og Miðflokknum, Ingu Sæland og Flokki fólksins, og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur og Viðreisn. Það er ekkert nýtt að Píratar láti Miðflokkinn heyra það en síður að þeir fari fram gegn Loga og Þorgerði Katrínu.
„Á næstsíðasta þing þessa kjörtímabils, var lögð upp sú taktík í stjórnarandstöðunni, sem Píratar tóku ekki þátt, að sjá til þess að ríkisstjórnin næði í gegn sem fæstum málum,“ sagði Björn Leví.
„Þau sem ákváðu að gera þetta, var alveg sama þó þau væru að koma í veg fyrir góð mál. Markmiðið var að láta ríkisstjórnina líta illa út.“
MBLtók saman lista um mál sem lögð voru fram af ríkisstjórn á næstsíðasta þingi þessa kjörtímabils:
- lög um hlutdeildarlán,
- lög um Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins,
- ferðagjöfin,
- hlutabótaleiðin,
- aðgerðir gegn kennitöluflakki,
- matvælasjóður,
- stofnun opinbers hlutafélags fyrir uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu,
- stofnun Kríu – sprota- og nýsköpunarsjóðs,
- skipt búseta barns,
- félagslegur viðbótastuðningur við aldraða,
- greiðslur launa í sóttkví, lenging fæðingaorlofs,
- Menntasjóður námsmanna
ásamt fleirum málum sem ætlað var að mæta efnahagslegum áhrifum Covid-faraldrinum.